Froskaleikur 1 - Listin að lesa

Froskaleikur 1 - Listin að lesa



Free

2.0for iPhone, iPad and more
7.3
3 Ratings
Raddlist
Developer
536.4 MB
Size
Nov 5, 2016
Update Date
Education
Category
4+
Age Rating
Age Rating
4+
Apps in this category do not contain restricted content.
9+
Apps in this category may contain mild or occasional cartoon, fantasy or real-life violence, as well as occasional or mild adult, sexually suggestive or horrifying content and may not be suitable for children under 9 years of age.
12+
Apps in this category may contain occasional mild indecent language, frequent or intense cartoon or real-life violence, minor or occasional adult or sexually suggestive material, and simulated gambling, and may be for children under 12 years of age.
17+
You must be at least 17 years old to access this App.
Apps in this category may contain frequent and intense offensive language; Frequent and intense cartoon, fantasy or realistic violence: frequent and intense adult, scary and sexually suggestive subjects: as well as sexual content, nudity, tobacco, alcohol and drugs, may not be suitable for children under 17 years of age.
Froskaleikur 1 - Listin að lesa Screenshots
Froskaleikur 1 - Listin að lesa poster
Froskaleikur 1 - Listin að lesa posterFroskaleikur 1 - Listin að lesa posterFroskaleikur 1 - Listin að lesa posterFroskaleikur 1 - Listin að lesa poster

About Froskaleikur 1 - Listin að lesa

FYRSTU HLJÓÐIN í máltöku íslenskra barna eru æfð í Froskaleik 1. Í þessum fyrsta leik af þremur um froskinn Hoppa, hjálpa börnin Hoppa að finna galdrabókina sem geymir uppskriftina að galdraseyðinu sem þarf að gefa Hoppa svo hann fái málið aftur. Það er gert með skemmtilegum æfingum þar sem farið er í gegnum fyrstu hljóðin sem börn tileinka sér í máltökunni í íslensku: /m, b, d, n, l, h, auk sérhljóða/. Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni.

UM ALLA FROSKALEIKINA 1 2 3
Froskaleikirnir segja frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í þremur mismunandi sjálfstæðum hljóðgreiningarleikjum fyrir barnafjölskyldur þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í kastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin æfa íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð þeirra, frá fyrsta í gegnum þriðja froskaleikinn með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi.

Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Efnistök smáforritsins byggja á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri.

Þá er góður málskilningur og orðaforði undirstaða fyrir góðan lesskilning og í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni.

Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur.
Engar auglýsingar. Foreldravörn.

Hjálplegar ábendingar frá Hoppa:
Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi.

Í fyrstu umferð þarf nemandi að klára öll borðin í hverju hljóði og fá 4 stjörnur. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Svo æfir barnið hljóðin í röð. Þannig opnast á öll hljóðin síðar og nemandi getur valið hljóð af handahófi. Markmiðið er að þjálfa ákveðin hljóð fyrst og gera þetta með stigvaxandi þyngd. Svo má leika sér að vild.

Málhljóðin í Froskaleikjunum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á:

1) Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Þá er fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- og sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð

2) Hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með vísan í táknmynd þess. Umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hvar þú ert komin/n í leiknum

3) Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hvar þú ert komin/n í leiknum

4) Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka.

Styrkir vegna þróunar Froskaleikja Hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf og Barnamenningarsjóður


*** Fyrirvari apps vilja vinna fyrir iPhone 4 en ekki á lausnaleit bestur.
Show More

What's New in the Latest Version 2.0

Last updated on Nov 5, 2016
Old Versions
This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 update
Show More
Version History
2.0
Nov 5, 2016
This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 update
1.0.4
Dec 11, 2015
Komið í iPhone útgáfu til viðbótar við iPad. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tækjum. Bætt notendaviðmót.
Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.
1.0.3
Oct 11, 2015
Komið í iPhone útgáfu til viðbótar við iPad. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tækjum. Bætt notendaviðmót.
Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.
1.0.2
Oct 9, 2015
Komið í iPhone útgáfu til viðbótar við iPad. Virkar í iPhone 4 en ekki eins vel og í nýrri tæki. Bætt notendaviðmót.
Hraðari virkni í smáforritinu.
Hljóðskrár í galdraseyði lagfærðar.
1.0.1
Nov 17, 2014
- critical bug fix on giving stars for level
1.0
Nov 13, 2014

Froskaleikur 1 - Listin að lesa FAQ

Click here to learn how to download Froskaleikur 1 - Listin að lesa in restricted country or region.
Check the following list to see the minimum requirements of Froskaleikur 1 - Listin að lesa.
iPhone
Requires iOS 8.0 or later.
iPad
Requires iPadOS 8.0 or later.
iPod touch
Requires iOS 8.0 or later.
Froskaleikur 1 - Listin að lesa supports English

Froskaleikur 1 - Listin að lesa Alternative

Get more from Raddlist